Kominn tími á eitt blogg. Jóla jóla jóla…………..ÚFF.
Já ég fattaði allt í einu að ég ætti þessa líka fínu bloggsíðu. Það er orðið mjög langt síðan að ég setti eithvað hérna inn. Þannig að ég tók ákvörðun um það að eyða seinustu færslum hérna til að fólk sæi nú ekki hvað ég er búinn að vera latur við þetta;) En ástæðan fyrir því að ég sá mig knúinn til að skrifa hérna er þetta endalausa jólakjaftæði í október og nóvember. Fólk er alveg að tapa sér í þessu rugli. Þó það sem að fer mest í mann það eru þessi blessuðu jólaljós sem er búið að troða allstaðar upp og kveikja á í miðjum nóvember og svo logar þetta langt fram á sumar liggur við. Þegar ég var lítill og saklaus drengur;p var kveikt á þessu svona um miðjan desember og slökkt á þrettándanum. Þá var líka stemma yfir þessu. En þegar logar á þessu helvíti í marga mánuði er nú sjarmurinn farinn af þessu. Og jú afsökun fólks……. “lýsa upp skammdegið”. Ég get nú ekki séð að þessar grjónlitlu perur geti lýst upp nokkurn skapaðan hlut. Ef fólk vill svona ólmt lýsa upp skammdegið á það bara að fá sér nokkra alvöru ljóskastara og láta jólaskapið mitt í friði!! hehe einn mjög bitur ![]()